Norður Rækja, eitt þriggja fyrirtækja sem nemendur í frumkvöðlafræðiáfanga í VMA kynntu á vörumessu í Smáralind, var útnefnd Áhugaverðastanýsköpun ungra frumkvöðla á árinu 2026.
Á heimasíðu VMA má finna umfjöllun um frumkvöðlafræðiáfangana og verkefnin þrjú sem voru kynnt á vörumessunni. Ásamt Norður Rækju var borðspilið EKKI GOOGLA og Vex lýðheilsuarmband kynnt á vörumessu ungra frumkvöðla sem fór fram í Smáralind 18. og 19. apríl síðastliðinn.
Öll þrjú fyrirtæki nema í VMA voru valin áfram í úrslit en 40 fyrirtæki af 150 komust í úrslit. Agnar Óli Grétarsson, einn nemendanna sem standa að Norður Rækju, segir í samtali við heimasíðu VMA að það hafi komið sér skemmtilega á óvart að hugmynd þeirra skyldi verða útnefnd sem Áhugaverðasta nýsköpunin, enda hafi margar aðrar flottar hugmyndir verið í pottinum.
Ítarleg umfjöllun um fyrirtæki nemendanna og vörumessuna má finna á vef VMA með því að smella hér. Hér má svo sjá upplýsingar um alla verðlaunahafa í Fyrirtækjasmiðju ungra frumkvöðla – JA Iceland árið 2026.










