Náttúra og auðlindanýting á Norðurlandi

Málþing AkureyrarAkademíunnar og Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri um náttúru og auðlindanýtingu á Norðurlandi fer fram fimmtudaginn 30. apríl, klukkan 12:00 til 14:00, í Háskólanum á Akureyri, stofu M102. Fundarstjóri er Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-; viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi.

Dagskrá

Kl. 12:00 – Ávarp – Sigurgeir Guðjónsson, stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar.

Kl. 12:05 – Fimm 15 mínútna framsögur um þema málþingsins:

  • Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri: Fiskveiðar frá Norðurlandi í 125 ár.
  • Jón Örn Pálsson, sjávarútvegsfræðingur, sjálfstætt starfandi hjá AkureyrarAkademíunni: Ný auðlindanýting á strandsvæðum Íslands.
  • Rannveig Björnsdóttir, prófessor við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri: Verðmætasköpun úr blóði eldisfisks.
  • Þórhallur S. Bjarnason, véla- og orkutæknifræðingur, sjálfstætt starfandi hjá AkureyrarAkademíunni: Vistvænn orkuberi úr hreinum auðlindum.
  • Rán Þórarinsdóttir, líffræðingur á sviði dýravistfræði hjá Náttúrustofu Norðausturlands og með aðsetur hjá AkureyrarAkademíunni: Að meta áhrif vindorkuvera á fugla.

Kl. 13:20 – Pallborðsumræður: Framsögumenn sitja fyrir svörum.

Kl. 14:00 – Málþingslok.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!