Edelstein og Vogler með Klassíska krufningu

Nú í maí munu Alexander Smári Kristjánsson Edelstein píanóleikari og Erla Dóra Vogler mezzosópran halda saman aðeins öðruvísi ljóðatónleika víða um Norðausturland. 

Alexander og Erla Dóra eru bæði þýsk-íslensk blanda og á tónleikunum munu þau flytja blöndu þýskra og íslenskra söngljóða. Tónleikarnir eru klassískir, en einnig óklassískir að því leiti að talað mál mun skipa óvenju veigamikinn sess á tónleikunum. Hvert söngljóðanna var valið inn á efnisskrána vegna þess að það er eitthvað við það sem heillar tónlistarmennina persónulega. Það getur verið formið, eða ákveðinn hljómur, orð eða setning, laglína, eitthvað sem tengist atburði í þeirra lífi… það getur verið algjörlega allskonar! Tónlistarmennirnir munu þannig kryfja lögin og deila með áheyrendum – auk þess að flytja þau.

Tónleikarnir verða haldnir í Þorgeirskirkju við Ljósavatn 9. maí kl. 16:00, Skólahúsinu á Kópaskeri í samstarfi við Flygilvini 10. maí kl. 13:00, Gamla skólanum á Bakkafirði í samstarfi við FarNorth Iceland 10. maí kl. 17:00 og Menningarhúsinu Bergi á Dalvík 28. maí kl. 20:00.

Aðgangseyrir er kr. 2.500 og eru tónleikarnir styrktir af Uppbyggingarsjóði SSNE og Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA.
Allar frekari upplýsingar um tónleikana má finna á facebook, undir Klassísk krufning.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!