Aðrir upphitunartónleikar Mannfólkið breytist í slím

Hefð hefur skapast fyrir röð upphitunartónleika í aðdraganda menningarhátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím til að vekja athygli á listafólki sem býr og starfar á Akureyri og koma þannig hreyfingu á tónlistarsenuna. Sérstaklega er horft til listafólks sem hefur frumsköpun að leiðarljósi og það mengi sem syndir fjarri meginstraumum. 

Listasamlagið og útgáfufélagið MBS stendur að Mannfólkið breytist í slím en hátíðin hefur verið haldin allt frá árinu 2018 með sérstaka áherslu á listafólk úr nærumhverfinu þar sem frumleiki og fjölbreytni atriða hefur orðið aðalsmerki verkefnisins. Á öðrum upphitunartónleikum Mannfólkið breytist í slím 2026 á Akureyri Backpackers verður hægt að njóta fyrsta flokks raftónlistar frá DAVEETH, sjaldséðs órafmagnaðs setts frá retrórokkurunum í Sólför og sígildra skífuþeytinga frá hinum óviðjafnanlega Vélarnari! 

Ekkert kostar inn á tónleikana sem hefjast stundvíslega klukkan 21:00.

Röð atriða er:

21:00 Sólför
21:30 DAVEETH
22:15 Vélarnar

Hlekkur á viðburð:

https://fb.me/e/9098nsNyQ

DAVEETH – SU10:

Sólför – Clockwork Carousel:

Heimasíða MBS:

MBS á samfélagsmiðlum:

https://www.instagram.com/mbsskifur
https://www.facebook.com/mbsskifur

Aðalviðburður Mannfólkið breytist í slím 2026:

https://fb.me/e/c5eqxpwKi

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!