Þann 9. maí kl. 13:00 fer fram viðburðurinn Von & Vöxtur að Hömrum á Akureyri á vegum verkefnisins Hjaltastaðir. Markmið viðburðarins er að vekja athygli á brýnu samfélagsmáli og kalla eftir tafarlausum aðgerðum svo einstaklingar falli ekki á milli kerfa.
Viðburðurinn er haldinn í minningu Hjalta Snæs Árnasonar, sem gekk í sjóinn við Kirkjusand aðeins 22 ára gamall eftir að hafa ekki fengið þá þjónustu sem hann þurfti á réttum tíma. Aðstandendur segja að Hjalti hafi fengið þjónustu tveimur árum of seint og nú sé ár liðið frá andláti hans án þess að nauðsynleg úrræði hafi verið sett á laggirnar. „Spurningin er einföld: hversu lengi á að bíða eftir því að úrræði fyrir Norðurland verði að veruleika?“ segir í yfirlýsingu frá stjórn verkefnisins. Mál Hjalta hefur vakið mikla athygli og verið til umfjöllunar, meðal annars í þættinum Kveik á RÚV.
Verkefnið Hjaltastaðir er þróunarverkefni sem miðar að því að skapa úrræði fyrir einstaklinga sem falla á milli kerfa eftir 18 ára aldur. Aðstandendur leggja áherslu á að þetta séu einstaklingar sem passi ekki inn í núverandi kerfi og fái því ekki þá þjónustu sem þeir þurfi. Markmiðið sé að breyta því, með því að grípa fyrr inn í, mæta fólki á þeirra forsendum og skapa raunverulegan stuðning til framtíðar. „Við erum rödd þeirra sem ekki heyrist í lengur og óp þeirra sem enn skortir hana. Við ætlum ekki að bíða þar til næsti einstaklingur lætur lífið vegna úrræðaleysis.“
Sem hluti af viðburðinum verður haldin táknræn gróðursetning á Hömrum þar sem stofnaður verður svokallaður Hjaltalundur. Um er að ræða táknræna aðgerð til áminningar og til að vekja athygli á mikilvægi málsins, en ekki framtíðarstaðsetningu verkefnisins sjálfs. Trén sem verða gróðursett standa sem lifandi tákn um von, vöxt og þá ábyrgð sem samfélagið ber gagnvart þeim sem þurfa á stuðningi að halda. Almenningur getur tekið þátt með því að kaupa tré, annað hvort til gróðursetningar á staðnum eða til að taka með sér heim.
Stjórn verkefnisins hefur sent boð á alla framboðsflokka um samtal og átt í góðum samskiptum við nokkra þeirra. Frambjóðendum hefur verið boðið að mæta á viðburðinn og taka þátt í umræðunni. Aðstandendur leggja áherslu á að þetta sé mál sem eigi að sameina, ekki sundra. „Allir flokkar eiga að geta unnið saman sem ein heild í þessu máli. Þetta snýst ekki um pólitík heldur líf fólks.“
Skipuleggjendur biðla til almennings og fyrirtækja að taka þátt í viðburðinum og styðja verkefnið. Á viðburðinum verður boðið upp á lifandi tónlist, samveru og afhendingu trjáplantna. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samstöðu og aðgerðir sem leiða til raunverulegra breytinga.
Kauptu Vonartré
1 tré – 5.000kr Minni stærð
1 tré – 10.000kr Stærri stærð
Í boði eru einnig að koma með frjáls framlög þar sem margt smátt gerir eitt stór ásamt eru fyrirtækjastyrktarpakkar í boði og er þá hægt að senda okkur tölvupóst.
Hægt er að kaupa tré og eiga það sjáfur, planta því á viðburðinum eða fá okkur til að planta því ef viðkomandi kemst ekki. Tréin koma frá Sólskógum og þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra stuðninginn en allur ágóði rennur til verkefnisins Hjaltastaðir.
Styrktarreikningur Hjaltastaðir:
0566-05-400111
Kt. 690684-1369








