Opinn borgarafundur Morgunblaðsins og mbl.is á Akureyri

Kosningaferðalag Morgunblaðsins og mbl.is í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga er á fullri ferð nú þegar aðeins tólf dagar eru þar til gengið verður að kjörborðinu.

Næsti opni borgarafundur verður haldinn á Græna hattinum á Akureyri næstkomandi miðvikudagskvöld, 6. maí.

Fundurinn hefst klukkan 20.00 en húsið verður opnað klukkan 19.30. Léttar veitingar verða til sölu á barnum og því tilvalið að mæta tímanlega á staðinn. 

Á fundinum munu oddvitar og bæjarstjóraefni efstu sex framboðanna (miðað við nýjustu skoðanakannanir) kynna sig, helstu áherslumál sín og stefnuskrá flokka sinna fyrir bæjarbúum. Umræðum verður stýrt af blaðamönnunum Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni.

Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir íbúa til að kynna sér helstu áherslur og málefni, sem snúa að sveitarfélaginu, auk þess sem tækifæri gefst til að spyrja spurninga og taka þátt í umræðum um framtíð bæjarins.

Allir bæjarbúar og nærsveitungar eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í lifandi og lýðræðislegri umræðu í aðdraganda kosninga.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!