Í maí hefst uppbygging veitukerfa Norðurorku til að styðja við byggingu Fésta á nýjum stúdentagörðum við Norðurslóð. Verkið felur í sér lagningu nýrra lagna meðfram Dalsbraut og Norðurslóð ásamt lagningu háspennustrengs að tengivirki í Klettaborg. Framkvæmdunum verður skipt í tvo áfanga og hefst sá fyrri um miðjan maí. Hámarkshraði verður lækkaður á svæðinu á framkvæmdartíma og hluta Norðurslóðar lokað tímabundið.
„Við erum meðvituð um þau óþægindi sem framkvæmdirnar kunna að valda íbúum og vegfarendum. Við vonumst eftir gagnkvæmum skilningi og teljum að með samvinnu og góðum vilja sé hægt að leysa þau mál sem kunna að koma upp,“ segir á vef Norðurorku þar sem má finna nánari upplýsingar.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?











