Í síðustu viku voru opnuð tilboð í útboði vegna fyrsta áfanga við nýbyggingu SAk sem felur í sér jarðvinnu götur, veitur og bílastæði. Greint er frá á vef Sjúkrahússins á Akureyri.
Tilboðin voru svo hljóðandi:
| Nafn bjóðenda | Tilboð án vsk. | Hlutfall af kostnaðaráætlun |
|---|---|---|
| G.V Gröfur ehf. | 391.560.000 kr. | 57% |
| Nesbræður | 424.301.537 kr. | 62% |
Kostnaðaráætlun, án vsk. 682.681.851
Verkið er fyrsti áfangi verkframkvæmda við SAk vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði. Við þessa stækkun þarf að gera ný bílastæði og endurnýja veitukerfi á lóðinni milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.
„Það er virkilega gleðilegt að tvö tilboð hafi borist í þetta fyrsta útboð vegna nýbyggingar SAk. Þetta er sannarlega langþráð verkefni og mikilvægt fyrir okkur að sjá fram á að framkvæmdir séu að fara í gang,“ segir Gunnar Líndal, verkefnastjóri á SAk.
Frétt NLSH: Opnun tilboða: Sjúkrahúsið á Akureyri – jarðvinna, götur, veitur og bílastæði | Nýr Landspítali










