Fiðringur á Norðurlandi fagnar 5 ára afmæli 

Í ár taka tíu grunnskólar af Norðurlandi þátt í sviðslistarviðburðinum Fiðringi á Norðurlandi sem haldinn verður í Hofi þann 6. maí. Varmahlíðarskóli tekur nú þátt í fyrsta sinn, og stefnan er að virkja alla grunnskóla á svæðinu frá Borðeyri til Bakkafjarðar. Fiðringur fagnar 5 ára afmæli í ár.

Nemendur á unglingastigi hafa unnið að atriðum sínum alla vorönnina með leiðbeinendum, en mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og lýðræðislega vinnu. Unglingarnir skapa allt sjálfir, frá hugmynd og leikmynd til búninga, sviðshreyfinga, ljósa og hljóðs. Verkefnið eflir því sköpun og tjáningu nemenda sem fá að koma sínum skoðunum á framfæri á listrænan hátt.

Í dómarahléi á úrslitakvöldinu verður flutt Fiðringslagið, sem í ár er lagið „Hvar ertu nú?“ með Maron Birni, sem mætir og skemmtir gestum. 

Kynnar verða leikarnir Hólmfríður Hafliðadóttir og Níels Thibaud Girerd sem léku hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur. Í dómnefnd sitja Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir dansari og kennari og Rebekka Rut fulltrúi Ungmennaráðs Akureyrar. Sérstök verðlaun verða veitt fyrir skapandi notkun íslenskunnar, metin af Eyrún Huld Haraldsdóttir íslenskukennara.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!