Samfylkingin mælist stærst á Akureyri

Samfylkingin stefnir í að verða stærsti flokkurinn á Akureyri ef niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir DV ganga eftir. Flokkurinn mælist nú með 18,4 prósenta fylgi og fengi þrjá bæjarfulltrúa, sem er aukning um tvo menn frá kosningunum 2022. Á sama tíma myndi núverandi meirihluti L-lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks ekki geta haldið áfram samstarfi án þess að bæta við sig fjórða flokknum.

L-listinn, sem lengi var stærstur í bænum, mælist nú með 17,2 prósent og tvo fulltrúa, sem er minna en í síðustu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn fylgir fast á eftir með 16,7 prósent og heldur sínum tveimur mönnum þrátt fyrir örlítið fylgistap. Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn mælast jöfn með 11,5 prósent, sem þýðir að Framsókn missir annan mann sinn en VG stendur í stað með einn fulltrúa.

Miðflokkurinn bætir við sig fylgi og mælist með 10,6 prósent, sem dugar áfram fyrir einn mann í bæjarstjórn. Viðreisn, sem ekki bauð fram síðast, nær inn manni með 8,1 prósents fylgi. Akureyrarlistinn mælist hins vegar með 6 prósent og nær ekki inn manni að svo stöddu.

Niðurstöðurnar sýna að sjö flokkar myndu ná inn mönnum, sem opnar á marga möguleika í meirihlutamyndun og Samfylkingin gæti gert kröfu um að leiða nýjan meirihluta. Könnunin var gerð dagana 17. til 24. apríl, 629 svarendur tóku afstöðu.

Mynd frá DV.is

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!