Í dag var undirritaður samningur milli Akureyrarbæjar og Svartra bóka um leigu á Laxdalshúsi. Samninginn undirrituðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Stuart David Gates fyrir hönd Svartrar bóka. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þar sem jafnframt segir að í húsinu verði rekin fornbókaverslun með áherslu á endurnýtingu og sjálfbærni. Auk sölu á notuðum bókum verður boðið upp á minjagripi og listmuni eftir listamenn á svæðinu, sem og kaffi og léttar veitingar.
Áætlaður opnunartími verður eftirfarandi:
- Mánudagar–föstudagar: kl. 12–18
- Laugardagar: kl. 12–17
- Sunnudagar: lokað, nema á háannatíma í júlí
Gert ráð fyrir reglulegri menningardagskrá með það að markmiði að efla Laxdalshús sem vettvang bókmennta og menningar. Meðal þess sem stendur til er:
- Mánaðarleg ljóða- og upplestrarkvöld
- Samstarf við listamenn og útgefendur
- Viðburðir í tengslum við þjóðhátíðardaginn 17. júní, Akureyrarvöku og fleiri tilefni
- Tenging við norrænt bókmenntasamstarf
Markmiðið er að skapa stöðugt og innihaldsríkt menningarstarf sem hæfir húsinu, með hóflegum fjölda gesta og vandaðri dagskrá að sögn Akureyrarbæjar.










