Sunnudaginn 26. apríl næstkomandi verður tónverkið Fantasía, sem er samið yfir sálmalagið Gefðu að móðurmálið mitt, eftir Daníel Þorsteinsson tónskáld flutt í Notre Dame kirkjunni í París.
Verkið var upprunalega pantað af Hallgrímskirkju í tilefni af 350 ára ártíð Hallgríms Péturssonar. Fantasía er tileinkað Birni Steinari Sólbergssyni organista, sem frumflutti verkið í hátíðarmessu á vígsluafmæli Hallgrímskirkju 27. október 2024 og flytur það nú í Notre Dame.
Í verkinu lítur Daníel um öxl til tónlistar fyrri alda:
„Endurreisnar- og barokktónskáldin Sweelinck og Back kveiktu hugmyndir um frjáls tilbrigði þar sem sálmurinn flæðir á milli ólíkra hluta verksins. Það skiptast á hröð og hæg myndbrot sálmsins, spegluð, teygð og toguð og í lítilli fúgu undir lokin fléttast íslenska þjóðlagið Ár vas alda saman við Gefðu að móðurmálið mitt sem annað stef eða mótstef.“










