Ljósmynd - Akureyrarbær

Uppbygging leikskólans Hagasteins gengur vel

Framkvæmdir við leikskólann Hagastein í Hagahverfi ganga vel og er stefnt að afhendingu fyrri áfanga í ágúst 2026. Áætlað er að full starfsemi hefjist í ársbyrjun 2027. Byggingin er reist úr krosslímdum timbureiningum þar sem sérstök áhersla er lögð á vandaða hljóðvist og rakavarnir.

„Leikskólinn verður átta deilda og mun rúma allt að 156 börn á aldrinum eins til sex ára. Fjöldi barna stýrist af aldurssamsetningu barnahópsins á hverri deild. Gert er ráð fyrir um 40-42 stöðugildum og að fjöldi starfsfólks gæti orðið 50-55 samtímis vegna hlutastarfa, sérkennslu og afleysinga,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!