Fjölbreytt dagskrá um sjálfbærni á Amtsbókasafninu

Vika 17 er alþjóðleg vika helguð heimsmarkmiðunum á bókasöfnum. Af því tilefni bjóða bókasöfn vítt og breitt um landið upp á fjölbreytta viðburði og fræðslu sem tengjast markmiðunum. Þótt vikan fari að jafnaði fram í 17. viku ársins verður hún haldin á Amtsbókasafninu á Akureyri dagana 27.–30. apríl. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, þar segir einnig:

Alla vikuna verður ratleikur tengdur heimsmarkmiðunum í gangi á 1. hæð safnsins. Í anddyrinu verður einnig vagn með bókum sem tengjast viðfangsefninu, ásamt verkefnablöðum og plokkbingói sem gestir geta tekið með sér.

Dagskráin er fjölbreytt:

  • Á þriðjudag kl. 16-17 fer fram viðburðurinn Sáðu fræi – sáningarverkstæði þar sem þátttakendur sá fræjum fyrir matjurtum og kryddjurtum og taka með sér heim. Allur efniviður verður á staðnum.
  • Á miðvikudag kl. 17-18 verður erindið Minni sóun, meiri verðmæti, þar sem fjallað er um matarsóun og gervigreind með Dísu Óskars, í samstarfi við Slow Food á Íslandi.
  • Á fimmtudag kl. 16.30 verður Matarsögustund – hvaðan kemur maturinn okkar?

Þetta er í fjórða sinn sem vikan er haldin hér á landi, en verkefnið á rætur sínar að rekja til Danmerkur. Nú taka nær 200 bókasöfn í tólf löndum þátt og sýna með fjölbreyttum hætti hvernig við getum öll lagt okkar af mörkum til sjálfbærrar framtíðar.

Þema ársins 2026 er heimsmarkmið númer 2: Ekkert hungur. Sérstök áhersla er lögð á málefni tengd matvælum, minni matarsóun og meðvitaðri neyslu.

Hversu oft hugsar þú um heimsmarkmiðin í daglegu lífi? Gæti verið að þú sért nú þegar að leggja þitt af mörkum – án þess að gera þér grein fyrir því?

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!