Vegna kröfugöngu og hátíðarhalda 1. maí verður hluta Skipagötu og Kaupvangsstrætis lokað fyrir umferð á milli klukkan 13.45 og 14.15 á morgun, 1.maí. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á umferð á þessu svæði. Götulokun göngugötunnar sjálfrar hefst þann 1. maí og verður hún því lokuð fyrir umferð bíla á þessum tíma.
Kröfugangan hefst við Alþýðuhúsið, þar sem göngufólk safnast saman klukkan 13.45 og leggur af stað klukkan 14.00 undir leik Lúðrasveitar Akureyrar. Að göngu lokinni tekur við hátíðardagskrá á Ráðhústorgi.
Á dagskrá verða ávörp og skemmtiatriði, meðal annars frá fulltrúum stéttarfélaga og leikfélögm MA og VMA. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á grillaðar pylsur og skátatívolí. Hér eru nánari upplýsingar.








