„Tölvuleikir eru gott tól fyrir fólk að tengjast og kynnast öðrum“

Tölvuleikjafélagið Gungnir við Verkmenntaskólann á Akureyri heldur vikulega klúbbhittinga í skólanum þar sem fólk á framhaldsskólaaldri og eldri getur komið saman og spilað tölvuleiki. Klúbbhittingarnir eru opnir öllum á framhaldsskólaaldri og upp og ekki er sett krafa á að þátttakendur þurfi að vera nemendur í VMA til þess að mæta. Klúbburinn hittist á mánudögum klukkan 16 til 21.

Valdemar Hermannsson er einn af stjórnarmeðlimum tölvuleikjafélagsins. Hann segir að stofnendum hafi þótt vanta vettvang þar sem fólk getur komið saman og spilað tölvuleiki í hóp í rólegheitum og haft gaman. Klúbburinn var stofnaður í febrúar og ásamt Valdemar sjá þau Alexander Ingvarsson, Kristján Brynjólfsson og Sigrún Dalrós Eiríksdóttir um klúbbinn.

„Áður en við fórum af stað með klúbbhittingana vorum við bara að halda tölvuleikjamót á Akureyri, við gerum það enn þá, og þá aðallega í tölvuleiknum Super Smash Bros Ultimate. Við fundum fyrir því að það var virkilega skemmtilegt að hittast og spila tölvuleiki með öðrum en aðal vandamálið við mótin er að þau eru keppni og það fælir marga burt frá því að mæta. Það eru einhver sem vilja kannski ekki spila alltof alvarlega eða hafa kannski ekki alltof mikinn áhuga á Smash Bros. Þá var það að stofna klúbbinn, þar sem eina markmiðið er að hafa gaman, besta lausnin,“ segir Valdemar í spjalli við Kaffið.is.

„Á hittingana mætum við í stjórninni með okkar eigin tölvur og leikjatölvur og við reynum að bjóða upp á skemmtilegt úrval af tölvuleikjum fyrir alla sem mæta. Við höfum svona fasta leiki sem eru eiginlega alltaf en reynum að koma með eitthvað skemmtilegt líka. Eins og síðast mættum við með Wii-tölvu og buðum fólki að spila Mario Party eða Mario Kart. Svo mætti ég tvisvar með allt Skylanders safnið mitt og það sló í gegn. Fólk má líka koma með sínar eigin græjur og spila á þeim, eitt eða með öðrum,“ segir Valdemar.

Valdemar segir að klúbburinn hafi gengið vel hingað til og stofnendur séu himinlifandi með hittingana. Nú sé markmiðið að fá fleiri meðlimi til að mæta og spila.

„Tölvuleikir eru svo gott tól fyrir fólk að tengjast og kynnast öðrum. Það hefur verið mikil áhersla á rafíþróttasvið tölvuleikjanna sem mér finnst geggjað en það má samt ekki gleyma að tölvuleikjaspilun þarf ekki alltaf að vera grafalvarleg og getur stundum bara verið skemmtileg.“

„Það sem mér finnst skemmtilegast að gera með klúbbnum er að spila óhefðbundnari tölvuleiki með öðrum sem maður gefst ekki alltaf tækifæri til að spila. Svo er þetta líka bara svo geggjuð leið til að kynnast öðrum með svipuð áhugamál. Þetta er líka góð leið til að æfa sig í t.d. bardagaleikjum og þá er það mjög þægilegt að hafa andstæðingin sinn hliðina hjá sér í raunveruleikanum sem maður getur lært frá eða kennt.“

Klúbburinn heldur einnig utan um Vígvöll, sem er mót í Smash Bros Ultimate leiknum. Síðasta mót var haldið 7. mars og þá tóku 19 einstaklingar þátt.

„Við streymum öll mótin okkar í beinni inn á streymi síðuna Twitch með lýsendum. Við setjum ótrúlega mikla vinnu í að halda viðburðina og að sjá um streymið og erum ákaflega stolt af því. Við höfum líka aldrei rukkað inn á mótin okkar og stefnum á að halda því þannig. Eins og er erum við enn þá að reyna að finna aðstöðu fyrir næsta Vígvallar mótið okkar sem við viljum reyna hafa í júlí,“ segir Valdemar að lokum.

Áhugasöm geta fengið að vita meira um skipulagða hittinga og tímasetningar í gegnum netfangið gungnir.klubbur@gmail.com. Þá er hægt að fylgja klúbbnum á Instagram-síðunni: @gungnir_gg

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!