Akureyrarbær er í hópi þeirra stofnana og sveitarfélaga sem tilnefnd eru til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026.
Sveitarfélagið er tilnefnt fyrir brautryðjendastarf við innleiðingu farsældarlaga og skólastarfs í eigin mála- og skjalakerfi (One Core), verkefni sem mörg önnur sveitarfélög horfa nú til. Þetta kemur fram í tilkynningu um tilnefninguna.
Á vef Akureyrar segir: „Í stuttu máli felur verkefnið í sér umbreytingu á skjalamálum í skólum bæjarins, þ.e. meðferð og varðveislu gagna, með innleiðingu á nýju kerfi og ferlum. Helstu markmið eru að tryggja upplýsingaöryggi og persónuvernd, styðja við öfluga og samþætta þjónustu við nemendur, bæta vinnuumhverfi starfsfólks og tryggja að vistun og varðveisla skjala sé samkvæmt ýtrustu kröfum.“
Verðlaunin verða veitt á Nýsköpunardegi hins opinbera þann 6. maí næstkomandi.










