Samkomulag hefur náðst milli Akureyrarbæjar og Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO) um að stöðin yfirgefi húsnæði sitt við Strandgötu eigi síðar en fimmtudaginn 30. apríl. Samhliða því fellur BSO frá dómsmáli á hendur bænum og fær félagið 5,5 milljónir króna í sinn hlut gegn því að rýma húsið fyrir maíbyrjun. Vísir greindi frá.
Lóðin undir húsnæði BSO er skipulögð fyrir íbúðabyggð og hafa deilur um framtíð staðarins staðið yfir í nokkur ár. Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs, telur niðurstöðuna farsæla fyrir báða aðila. Áður en húsið verður fjarlægt mun slökkviliðið nýta það til reykköfunaræfinga með gervireyk sem veldur ekki skemmdum á húsnæðinu.
Í framhaldinu verður húsið auglýst til flutnings. Vonir standa til þess að hægt verði að taka það í sundur og endurreisa á nýjum stað þar sem ríkur vilji er til að varðveita mannvirkið sem hluta af menningararfi Akureyrarbæjar. Þrátt fyrir fyrri óánægju bílstjóra með flutningana er það mat formanns bæjarráðs að sátt ríki nú um málalok og að horft sé til framtíðar.





