Knattspyrnumaðurinn Oliver Heiðarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA á Akureyri. Oliver kemur til KA frá króatíska stórliðinu Lokomotiva Zagreb. Greint er frá í tilkynningu á vef KA í dag.
Oliver sem er 25 ára gamall er öflugur sóknarmaður sem leikur iðulega á hægri kanti gekk í raðir Lokomotiva Zagreb eftir síðasta sumar en hann vakti verðskuldaða athygli er hann fór fyrir liði ÍBV sumrin 2023 til 2025. Á þeim tíma tryggði ÍBV sér sæti í efstudeild á ný og var spútniklið deildarinnar í fyrra. Þar áður lék hann með FH sumrin 2021 og 2022. Oliver er uppalinn í Þrótti Reykjavík og hóf meistaraflokksferil sinn í Laugardalnum.
Faðir Olivers er enginn annar en norðlendingurinn Heiðar Helguson sem gerði garðinn frægan með Watford, Fulham, Bolton, QPR og Cardiff í enska boltanum auk þess að leika 55 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og á Oliver því ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana.
„Það er óhætt að fullyrða að koma Olivers norður mun styrkja okkar öfluga lið enn frekar og hlökkum við til að sjá til hans í gula og bláa búningnum í sumar. Oliver mætti norður í dag og kemur því strax inn í leikmannahópinn en næsti leikur KA er heimaleikur á föstudaginn gegn Íslandsmeisturum Víkings,“ segir í tilkynningu KA.










