Háskólinn á Akureyri opnaði formlega slíðastliðinn föstudag Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda. Um er að ræða nýja þverfaglega miðstöð sem mun efla rannsóknir á innflytjendamálum og samfélagsbreytingum í kjölfar fjölbreyttari íbúasamsetningar á Íslandi. Markmiðið er að safna, greina og miðla þekkingu sem nýtist stjórnvöldum, sveitarfélögum, stofnunum og almenningi. Greint er frá í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Við opnun rannsóknamiðstöðvarinnar tóku til máls m.a. Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri, Dr. Noa K. Ha, scientific framkvæmdastjóri German Centre for Integration and Migration Research DeZIM Institut, Dr. Marya Rozonova-Smith frá George Washington háskólanum í Bandaríkjunum og Markus Meckl, prófessor við Félagsvísindadeild HA. Á meðal þess sem fram kom í máli fundarmanna var mikilvægi þess að byggja upp trausta þekkingu og rannsóknir sem styðja við stefnumótun og þjónustu á svæðinu.
„Stofnun miðstöðvarinnar er fjármögnuð úr Þróunarsjóði innflytjendamála og markar tímamót í uppbyggingu fræðilegrar þekkingar á sviði innflytjendamála á Íslandi. Með tilkomu hennar verður til formlegur og öflugur vettvangur sem styður við faglega umræðu, stefnumótun og samfélagsþróun á landsvísu,“ segir í tilkynningu.










