Lýðheilsustefna Akureyrarbæjar hefur nú verið sett í íbúasamráð. Markmið stefnunnar er að efla heilsu og vellíðan íbúa á öllum æviskeiðum og stuðla að samfélagi sem styður við andlega, líkamlega og félagslega heilsu.
Lýðheilsa snertir alla og með íbúasamráði er skapað tækifæri fyrir íbúa til að hafa áhrif á áherslur og þróun stefnunnar. Með því að koma að umræðunni geta íbúar miðlað hugmyndum og sjónarmiðum sem nýtast við forgangsröðun aðgerða og ákvörðunartöku næstu ára.
Í stefnunni er gert ráð fyrir að farið verði í allt að 10 aðgerðir á ári á gildistíma hennar. Aftast í stefnunni eru lagðar fram tillögur að aðgerðum fyrir yfirstandandi ár, en markmið íbúasamráðsins er meðal annars að gefa íbúum kost á að hafa áhrif á hvaða aðgerðir verði valdar og hvernig þeim verði forgangsraðað.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér stefnuna og senda inn ábendingar og tillögur í gegnum rafrænt umsagnareyðublað. Á forsíðu stefnunnar er QR-kóði sem leiðir beint í formið, einnig er hægt að fara inn á þessa slóð. Með virkri þátttöku íbúa er lagður grunnur að lýðheilsustefnu sem endurspeglar þarfir og vilja samfélagsins og styður við öflugt og heilbrigt sveitarfélag til framtíðar.
Hægt er að senda inn ábendingar til og með 24. apríl.










