Ljósmynd af Akureyri.is

Þrjú verkefni hljóta styrki úr Sprotasjóði

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að þrjú verkefni tengd bænum hafi hlotið styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla fyrir skólaárið 2026–2027. Styrkhafarnar voru:

  • Lundasel – Pálmholt: Að undrast – samræður í leikskólastarfi – 3.360.000 kr.
  • Glerárskóli: Fjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir – 2.500.000 kr.
  • Iðavöllur: Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms – 2.000.000 kr.

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað samtals 64.370.000 kr. til 20 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu síðastliðinn laugardag af mennta- og barnamálaráðherra, Ingu Sæland, og Braga Þór Svavarssyni, formanni stjórnar sjóðsins.

Sprotasjóður styður við þróun og nýsköpun í skólastarfi á öllum skólastigum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrár. Umsýsla sjóðsins er í höndum Rannís. Áherslur sjóðsins árið 2026 voru meðal annars lýðræði og mannréttindi sem grunnþáttur menntunar, auk nýrra leiða í kennslu og námsmati með aukinni virkni og sjálfstæði nemenda að leiðarljósi.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!