Lokatölur frá Akureyri: Meirihlutinn fallinn

Lokatölur frá Akureyri bárust rétt fyrir þrjú í nótt. Engin breyting hafði orðið á fulltrúafjölda framboðanna frá því að fyrstu tölur bárust, en lítillegar breytingar hafa orðið á fylgi.

Meirihlutinn fallinn

Samkvæmt lokatölum er núverandi meirihluti L-listans, Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins fallinn. Þetta stafar af því að L-listinn missir einn bæjarfulltrúa. Samfylkingin bætir aftur á móti við sig einum bæjarfulltrúa. Akureyrarlistinn er nýtt framboð og kemur einum manni inn, sem hristir einnig upp í hlutunum. Viðreisn er einnig nýtt framboð í sveitarfélaginu en kemur ekki manni inn. Fulltrúafjöldi D, B, V og M lista er óbreyttur frá fráfarandi bæjarstjórn.

Á kjörskrá eru 15.547 manns.

Nýjustu tölur:

D-listi Sjálfstæðisflokksins hlaut 19,4% atkvæða og 2 Bæjarfulltrúa

L-listinn, bæjarlisti Akureyrar hlaut 19,3% atkvæða og 2 Bæjarfulltrúa

S-listi Samfylkingarinnar hlaut 16,7% atkvæða og 2 Bæjarfulltrúa

B-listi Framsóknarflokksins hlaut 15,1% atkvæða og 2 Bæjarfulltrúa

M-listi Miðflokksins hlaut 8,1% atkvæða og 1 Bæjarfulltrúa

V-listi Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs hlaut 7,9% atkvæða og 1 Bæjarfulltrúa

A-listinn, Akureyrarlistinn hlaut 7,5% atkvæða og 1 Bæjarfulltrúa

C-listi Viðreisnar hlaut 6% atkvæða og 0 Bæjarfulltrúa

Kjörnir bæjarfulltrúar:

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (D)

Óðinn Svan Óðinsson (L)

Sindri S. Kristjánsson (S)

Sunna Hlín Jóhannesdóttir (B)

Heimir Örn Árnason (D)

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir (L)

Hanna Dóra Markúsdóttir (S)

Hlynur Jóhannsson (M)

Jana Salóma Ingibjargar Jósepsdóttir (V)

Þórhallur Jónsson (A)

Gunnar Már Gunnarsson (B)

Fréttin hefur verið uppfærð eftir því sem tölur hafa borist

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!