Alls bárust 16 tillögur í opna framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis sem Akureyrarbær efndi til í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og eru því 15 gildar tillögur nú til umfjöllunar hjá dómnefnd. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.
Þar segir að tilgangur samkeppninnar hafi verið að leita að hönnunarhópi og fá fram raunhæfa tillögu að miðbæjarumhverfi sem væri eftirsóknarvert til búsetu og suðupottur fyrir margvíslega starfsemi í hjarta Akureyrarbæjar.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Stefnt er að því að tilkynna um niðurstöðu samkeppninnar og afhenda verðlaun við athöfn í Hofi þriðjudaginn 26. maí klukkan 17.00.










