Mynd: Stefán Þór Friðriksson

Sólför gefur út nýja smáskífu fyrir sumarið 

Akureyrska hljómsveitin Sólför gaf út sína fjórðu smáskífu á föstudaginn síðasta sem ber heitið Red Love og er grípandi útvarpsrokk með 80’s yfirtónum. 

„Textinn fjallar um ástarsamband milli manns og bíls. Ég byggði hann lauslega á atviki sem henti Fúsa bassaleikara, þegar honum áskotnaðist bíll sem þurfti svo að fara í pressuna. Mér fannst það vel við hæfi því markmið okkar var að semja gott lag til að hlusta á í bílnum. Svona „sólgleraugun á, rúðurnar niður og tónlistin í botni“ lag. Þetta er allavega sumarlagið frá okkur í ár,“ segir Ívan Mendez, söngvari sveitarinnar. 

Sólför spilar næst á tónlistarhátíðinni MBS (Mannfólkið breytist í slím) sem verður haldin helgina 16.-18. júlí. 

Hér má hlusta á lagið Red Love:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!