Sjómannadagshelgin er haldin hátíðleg víða um land dagana 6. og 7. júní.
Samkvæmt heimildum sem varðveittar eru hjá Héraðsskjalasafninu á Akureyri er talið að sjómannadagurinn hafi fyrst farið fram á Akureyri árið 1939, en áður var hefð fyrir því að halda sjómannamessur til heiðurs sjómönnum. Árið 1987 var dagurinn gerður að lögbundnum frídegi sjómanna á Íslandi.
Í grein sem birtist í Morgunblaðinu árið 1940 var sagt frá sjómannadeginum á Akureyri.
„Á Akureyri hófust hátíðarhöldin með því, að sjómenn söfnuðust saman kl. 11 á innri hafnarbryggjunni og gengu þaðan í skrúðgöngu til Ráðhússtorgs. Þar var haldin guðsþjónusta og flutti vígslubiskup, sr. Friðrik Rafnar ræðuna og kirkjukórinn söng.“
Akureyringar háðu keppnir.
„Kl. 2 hófust svo hátíðarhöld við Torfunessbryggju. Þar keptu sex sveitir í kappróðri og var kept um bikar, gefinn af Útgerðarmannafjelagi Akureyrar. B-sveit Vjelstjórafjelagsins sigraði. Þá var kept í stakkasundi um bikar, er Axel Kristjánsson kaupmaður hafði gefið, og tóku sex menn þátt í því. Hlutskarpastur varð Vilhjálmur Aðalsteinsson. Loks var kept í íþróttum á velli knattspyrnufjel. Þórs. Keptu Sjómannafjelagið og Vjelstjórafjelagið í knattspyrnu um bikar, sem Bifreiðastöð Akureyrar hafði gefið. Bar Sjómannafjelagið sigur úr býtum. Þá var kept í reipitogi og vann Vjelstjórafjelagið það og þar með bikar, sem Útgerðarfjelag K.E.A. hafði gefið. Um kvöldið var haldin samkoma í samkomuhúsi Akureyrarbæjar við húsfylli.“

Pollurinn á árunum 1934-1939. Mynd: Minjasafnið á Akureyri
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní. Hér að neðan má sjá þá viðburði sem verða á Akureyri, í Grímsey og Hrísey.
Akureyri:
kl. 08.00 Fánadagur
Bæjarbúar draga fána að hún
kl. 11.00 Sjómannadagsguðþjónusta
Messa í Akureyrarkirkju – sjómenn heiðraðir.
kl. 13.00 og kl. 14.15 Hópsigling smábáta og Húni II.
Húni siglir með bæjarbúa og hópsigling smábáta. Öll velkomin.
kl. 15.30 Höefnerssvæðið
Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn afhjúpaður.
Grímsey:
Í Grímsey heldur Kvenfélagið Baugur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla á sunnudeginum.
Hrísey:
kl. 10.00 Sigling
kl. 11.11 Sjómannadagsmessa í Hríseyjarkirkju.
kl. 12.00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu. Tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis. Leikir og sprell á svæðinu og við smábátahöfnina.
kl. 15.00 Kaffisala kvenfélagsins í Íþróttamiðstöðinni.
kl. 16.00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda.









