Fannst „kult“ að taka á móti kónginum

Þann 26. maí síðastliðinn tók hinn tíu ára gamli Einar Smári Nilsen á móti konungnum í Noregi þegar hann steig á land í Etne í Noregi. Kaffið fjallaði fyrr í maí um heimsóknina sem tengist verkefni konungshjónanna þar sem þau ferðast um Noreg með það markmið að heimsækja öll sveitarfélög landsins. Einar Smári á íslenska móður sem er fædd og uppalin á Akureyri en faðir hans er norskur og ólst upp í Skånevik í sveitarfélaginu Etne í Noregi.

Heimsóknin gekk vel. Aðeins liðu örfáar mínútur frá því að konungurinn steig á land og þar til hann var lagður af stað í bílferð umhverfis Etne.

Að sögn móður Einars fannst honum mjög „kult“ að hafa verið valinn og var hann ekkert að stressa sig of mikið yfir heimsókninni.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá viðburðinum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!