Fjölgun flugfarþega um Akureyrarflugvöll

Farþegafjöldi á Akureyrarflugvelli sló met árið 2025 þegar rúmlega 107 þúsund farþegar fóru um völlinn, samanborið við 92 þúsund árið 2023. Þessa fjölgun má einkum rekja til reglulegs vetrarflugs EasyJet síðastliðin þrjú ár, RÚV greindi frá.

Að sögn Arnheiðar Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, skilar flugið 60-80 þúsund viðbótargistinóttum á lágönn, sem styður við uppbyggingu fyrirtækja og fjölgun heilsársstarfa.

Þrátt fyrir skammlífari tilraunir flugrekstrar á borð við NiceAir og innanlandsflug Icelandair til Keflavíkur, er staða millilandaflugsins talin traust um þessar mundir þar sem framboð EasyJet hefur verið aukið jafnt og þétt frá upphafi.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!