Jón Steindór Árnason hefur verið ráðinn til starfa hjá Háskólanum á Akureyri sem sviðsstjóri Fjármála- og rekstrarsviðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri.
„Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri. Sem fyrrverandi nemandi skólans þekki ég vel það mikilvæga hlutverk sem hann gegnir fyrir samfélagið og atvinnulífið. Fram undan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki að því að byggja upp sterkt fjármála- og rekstrarsvið sem styður við metnaðarfulla starfsemi háskólans á sviði kennslu, rannsókna og samfélagsþjónustu,“ segir Jón Steindór.
Jón Steindór hefur starfað sem fjárfestingastjóri óskráðra hlutabréfa hjá KEA frá árinu 2021 þar sem hann kom að mati og eftirfylgni fjölbreyttra fjárfestinga. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri fagfjárfestasjóða hjá Íslenskum verðbréfum í átta ár og leiddi fjárfestingar í fyrirtækjum víða um land. Jón Steindór hefur jafnframt starfað sem sjálfstæður ráðgjafi og komið að stefnumótunar- og skipulagsverkefnum hjá Fjármálaeftirlitinu. Þá starfaði hann um árabil hjá Byr sparisjóði og Sparisjóði Hafnarfjarðar við viðskiptaþróun, markaðsmál og verkefnastjórn.
Samhliða störfum sínum hefur Jón setið í stjórnum fyrirtækja og félaga, bæði sem formaður, varaformaður og almennur stjórnarmeðlimur. Hann lauk B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og M.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
„Við bjóðum Jón Steindór hjartanlega velkominn í hóp HA-inga,“ segir í tilkynningunni.










