Una Torfa ætlar að gleðja allra yngstu aðdáendur sína með sérstökum fjölskyldutónleikum í Akureyrarkirkju mánudaginn 29. júní klukkan 16.30.
Að sögn Unu hefur hana lengi dreymt um að halda tónleika fyrir yngsta hlustendahópinn sinn.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Látið orðið berast! Það verður nóg pláss fyrir krakka á öllum aldri og ég hlakka til að hitta ykkur sem flest,“ segir Una í tilkynningu á Facebook.
Miðaverð er 2900 kr. og það er frítt inn fyrir börn 8 ára og yngri.
Hér má finna miða á viðburðinn.










