ÁLFkonur er félagsskapur kvenna og áhugaljósmyndara á Eyjafjarðarsvæðinu sem hafa starfað saman í sextán ár og þetta er í fimmtánda sýningin þeirra í Lystigarðinum á Akureyri. Sýningin opnar formlega laugardaginn 6. júní klukkan 15.00 og aðgangur er ókeypis.
Það er áralöng hefð hjá ÁLFkonum að setja upp nýja ljósmyndasýningu í Lystigarðinum í sumarbyrjun. Hópurinn ákveður þema til að vinna eftir og að þessu sinni helgast sýningin af 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands sem er á þessu ári. Stofnfundur félagsins var haldinn árið 1926 og þangað mættu átján ljósmyndarar, þar af þrjár konur, sem flest störfuðu þó í Reykjavík.
Hugmynd ÁLFkvennanna var að vinna með hundrað ára gamlar ljósmyndir frá Akureyri sem eru varðveittar í Minjasafninu á Akureyri og gera tilraun til að finna staðinn þar sem ljósmyndarinn stóð þegar hann tók myndina á sínum tíma.
Þátttakendur að þessu sinni eru: Agnes H. Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Gunnlaug E. Friðriksdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.





