Dómnefnd á vegum Akureyrarbæjar leggur til að húsnæði BSO við Strandgötu verði afhent Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit án endurgjalds. Alls bárust sex umsóknir um húsið eftir að Akureyrarbær auglýsti það gefins. Húsið þarf að fjarlægja af núverandi stað fyrir 15. júní næstkomandi. Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti niðurstöðu dómnefndar á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag.
Í auglýsingu bæjarins kom fram að umsækjendur þyrftu sjálfir að bera kostnað af flutningi hússins. Við mat á umsóknum var annars vegar horft til þess hvort húsið yrði nýtt til almenningsnota, sem vó 80 prósent í mati dómnefndar, og hins vegar hvort lóð væri til staðar fyrir húsið, sem vó 20 prósent.
Jólagarðurinn hlaut hæstu einkunn, 9,2 af 10 mögulegum. Í umsögn dómnefndar segir að þar verði húsið nýtt sem almennur áningarstaður án endurgjalds, auk þess sem þar verði greiðasala og verslun í takt við núverandi starfsemi. Þá sé umhverfið sérstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldur og lóð þegar til staðar.
Næsthæstu einkunn fékk Hvalaskoðun á Hjalteyri með 6,8 stig. Kaffi BSO eða Kaffi Á. Símonar, sem hugsað var sem kattarkaffihús á Akureyri, hlaut 6,4 stig. Tvær umsóknir um keramikverkstæði og gallerý fengu 6,6 og 5,6 stig. Umsókn um sumarhús í Hörgárdal fékk enga einkunn þar sem hún þótti ekki uppfylla skilyrði um almenningsnotkun.
Í mati dómnefndar kemur fram að Kaffi BSO hafi verið talið „skemmtileg hugmynd“ sem höfði til ákveðins hóps og fjölskyldufólks, en skortur á lóð hafi dregið umsóknina niður. Um keramikverkstæðin segir að þau höfði til þrengri hóps notenda, þótt gallerýstarfsemi geti breikkað þann hóp.
Dómnefndina skipuðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður.










