Gistiheimilið Ásar stendur á austurbakkanum í Eyjafjarðarsveit, í tíu mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri, og er rekið af Hrefnu Laufeyju og Árna.
Nýlega byggðu þau nýjan skála við gistiheimilið, sem þau munu leigja út fyrir ýmsa viðburði, fundi og veislur fyrir allt að þrjátíu manns.
„Við bjóðum upp á mat og kaffiveitingar á fundum og viðburðum og erum á staðnum til að veita fyrsta flokks þjónustu,“ segja þau.
Það verður fjölbreytt dagskrá í skálanum frá og með næsta hausti. Þar má meðal annars nefna viðburði eins og kvöldverðarhelgar, brönshelgar, dekurhelgar og prjónahelgar. Þegar líða fer að jólum verður boðið upp á jólakvöldverði og jólabrönsa alla daga vikunnar.
„Við höldum að þessi stærð af sal sé einmitt það sem vantar hér á Eyjafjarðarsvæðinu.“
Hér má finna nánari upplýsingar um Gistiheimilið Ása.










