Ljósmynd: Akureyrarbær

Virk efri ár í nýjum treyjum fyrir Landsmót

Þátttakendur í ringó-hópi Virkra efri ára og EBAK mættu til æfinga í glænýjum keppnistreyjum í Síðuskóla nýverið en hópurinn undirbýr sig fyrir þátttöku í Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer síðar í þessum mánuði. Ringó-æfingarnar eru hluti af starfi Virkra efri ára og fara fram í samstarfi við EBAK sem styrkti kaup á treyjunum.

„Þessi hópur er fallegt dæmi um þá hugmyndafræði sem liggur að baki heilsueflandi samfélagi. Heilsa snýst ekki eingöngu um líkamlega hreyfingu heldur einnig um félagsleg tengsl, þátttöku, tilgang og ánægju. Með því að skapa vettvang þar sem fólk kemur saman reglulega, hreyfir sig, setur sér markmið og á góðar stundir með öðrum er verið að efla bæði líkamlega og andlega vellíðan,“ segir Héðinn Svarfdal, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ á vef bæjarins.

Héðinn segir rannsóknir sýna að regluleg hreyfing og sterk félagsleg tengsl stuðli að betri heilsu, auknum lífsgæðum og sjálfstæði á efri árum. „En það skiptir ekki síður máli að hafa gaman. Hlátur, samvera og jákvæð upplifun eru mikilvægir þættir í góðri heilsu, sama á hvaða aldri fólk er.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!