SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en félagið tilkynnti að landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, hefði skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag. Sunna mun ekki einungis spila fyrir SA heldur mun hún einnig taka að sér þjálfun hjá félaginu og verður aðalþjálfari U16 liðs SA næsta vetur.
„Við erum auðvitað hæst ánægð að vera búin að fá Sunnu heim. Hún er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir kvennaliðið okkar, leikmaður með háan standard, mikla reynslu og auðvitað í fremstu röð íslenskra leikmanna. Hún á eftir að setja svip sinn á kvennaliðið og hafa mikil áhrif á leikinn og leikmennina,“ segir Elísabet Ásgrímsdóttir, formaður SA á vef SA.
Hin 25 ára gamla Sunna er fyrirliði íslenska landsliðsins og hefur verið valin íshokkíleikmaður ársins á Íslandi síðustu tvö ár. Sunna hefur leikið fimm tímabil með Södertälje SK, auk þess sem hún hefur leikið tímabil með bæði Haninge og Troja/Ljungby innan NDHL-deildarinnar í Svíþjóð. Síðan hefur hún farið á láni og spilað með Leksand og HV71 í SDHL-deildinni, sem er sterkasta kvennadeild Evrópu. Sunna hefur skorað 176 stig, 76 mörk og 100 stoðsendingar, í 146 leikjum í næstefstu deild Svíþjóðar og á einnig 13 leiki að baki í SDHL-deildinni.
Sunna lék síðast heilt tímabil með SA tímabilið 2018–2019, fyrir utan þrjá leiki sem hún spilaði með liðinu í úrslitakeppninni á covid-tímabilinu árið 2021. Sunna var aðeins 18 ára gömul þegar hún fór erlendis en hafði þá spilað 88 leiki í meistarflokki og skorað í þeim 192 stig.
„Við erum jafnframt ákaflega lánsöm að fá svo öfluga fyrirmynd og reynslumikinn leikmann sem þjálfara hjá U16. Þar eru margar stelpur í hópnum og því ekki síður mikilvægt að fá kvenþjálfara þar og almennt inn í þjálfarateymið okkar,“ segir Elísabet.
„Ég er mjög glöð að vera komin heim og spennt fyrir þessum nýju verkefnum, ásamt því að fá að miðla reynslu minni inn í liðið og þjálfunina,“ segir Sunna.










