Mynd: RÚV

Sérkennari á Akureyri notar hesta við kennslu

Andrea Diljá Ólafsdóttir kennari á Akureyri leitar nýrra leiða fyrir nemendur á aldrinum 12 til 16 ára sem finna sig ekki í hinu hefðbundna skólakerfi. Síðastliðinn vetur notaði hún hesta til að styðja við nemendur og hefur það reynst vel. Fjallað var um verkefnið á vef RÚV.

„Markmiðið með verkefninu er að höfða til barna sem eru með skólaforðun, kvíða og annað sem að gerir erfitt fyrir þau að vera inni í hefðbundinni skólastofu. Þetta eru allskonar verkefni sem þau eru að gera sem að hjálpar þeim að öðlast trú á eigin getu,“ segir Andrea í samtali við RÚV.

Hér má sjá innslagið í heild sinni.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!