Leysingar listahátíð í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Listahátíðin Leysingar fer fram á Siglufirði 29. til 30. maí 2026. Alþýðuhúsið hefur staðið fyrir Gjörningahátíð á Siglufirði í Fjallabyggð um Páska árlega síðan árið 2013 með þátttöku fjölda listamanna víðsvegar að úr heiminum í bland við heimamenn. Þar mætast ólíkir straumar og lífsviðhorf sem opna glugga í allar áttir og gefa þátttakendum tækifæri til að láta ljós sitt skína, kynnast öðru skapandi fólki og mynda tengs. Auk gjörninga verður sýning í Kompunni og tónleikar í lok hvers dags. Nú hefur hátíðin verið færð um mánuð og verður í lok maí.

Gjörningaform myndlistar á sér langa sögu og er mjög viðurkennt form á listsköpun. Þar koma saman ólíkar listgreinar og sameinast í einhvernskonar spuna eða fyrirfram gefnu flæði sem skilar sér í einstakri upplifun til áhorfandans. Hátíðin hefur verið að dafna undanfarin ár og önnur listform bæst við svo nú gefst tækifæri til að kanna enn frekar tengsl tónlistar við myndlist, kvikmyndagerð, ljóð og bókmenntir og hvernig listgreinarnar krossast og styðja hvor aðra. Mikil áhersla er lögð á að skapa grundvöll fyrir frjálsa sköpun og boða til leiks listamenn sem kunna að fara með það form.
Öll eru velkomin og tekið verður við frjálsum framlögum á hátíðina í anddyri Alþýðuhússins .

Fjallabyggð, SSNE, Aðalbakarí, Kjörbúðin og Ísfélagið styrkja hátíðina.

Þátttakendur í Leysingum 29 – 30 maí.

Yuliana Palacios
Rósa Sigrún Jónsdóttir
Anna Sóley Ásmundsdóttir
Lilja María Ásmundsdóttir
Anna Richardsdóttir
Masaya Ozaki
Sölvi Kolbeinsson
Magnús Trygvason Eliassen
Hilmar Jensson
Hrafnkell Tumi Georgsson

Dagskrá 29. og 30. maí.

29. Maí
kl. 16.00- 18.00 – Alþýðuhúsið, Kompan, sýningaropnun – Rósa Sigrún Jónsdóttir
Kl. 20.30 – 21.00 – Alþýðuhúsið, gjörningur – Hrafnkell Tumi Georgsson
kl. 21.15 – 22.15- Alþýðuhúsið, tónleikar – Marey, Anna Sóley Ásmundsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir.

30. Maí
kl. 14.00 – 17.00 – Alþýðuhúsið, Kompan, sýning – Rósa Sigrún Jónsdóttir
kl. 15.00 – 15.40 – Ráðhússalur Siglufjarðar 2.h. – gjörningur, Yuliana Palacios
kl. 16.00 – 17.40 – Alþýðuhúsið, gjörningur – Masaya Ozaki
kl. 18.00 – 18.40 – Ljósastöðin, gjörningur – Anna Richardsdóttir
kl. 21.00 – 22.00 – Alþýðuhúsið, tónleikar – Sölvi Kolbeinsson, Magnús Trygvason Eliassen, Hilmar Jensson

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!