Jói Bjarki gefur út nýtt lag

Jói Bjarki er tónlistarmaður frá Hjalteyri sem er búsettur á Akureyri. Undanfarin ár hefur hann verið að fást við tónlist og gefið út nokkur lög. 

Nýlega gaf Jói Bjarki út lagið Ekki neitt

,,Lagið Ekki neitt er samið út frá sjónvarpsþáttum og fjallar um samband tveggja einstaklinga þar sem annar aðilinn gefur allt í sambandið en hinn ekki neitt þrátt fyrir að báðir aðilar séu jafn ástfangnir. Lagið samdi ég sjálfur og sá einnig um söng og allt hljóðfæraspil fyrir utan bassagítar. Á bassa spilaði Sid Neel úr bandarísku hljómsveitinni Terrestrial Animal. Ég tók allt upp sjálfur, mixaði og masteraði.’’

Hér má hlusta á lagið:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!