Svissneski listamaðurinn Zimoun opnar sýningu í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 4. júní. Sýningin er hluti af Listahátíð Reykjavíkur.
Zimoun er þekktur fyrir stórar hljóðinnsetningar og skúlptúra sem hann vinnur úr hversdagslegum og endurnýttum efnum. Með vélrænum hreyfingum umbreytir hann rýmum í lifandi hljóðheima þar sem bank, titringur og núningur fléttast saman. Listaverkin varpa ljósi á iðnvæðinguna, sjálfvirkni og neyslusamfélagið en einkennast á sama tíma af húmor, kaldhæðni og sterkri skynrænni upplifun.
Zimoun ræddi við Kaffið um sýninguna.
Aðspurður segir Zimoun að innsetningin í Listasafninu á Akureyri hafi orðið til út frá rannsóknum hans á samspili titrings og efna sem endurvarpa eða magna upp hljóðbylgjur. „Ég hafði áhuga á að skoða hvernig titringur ferðast og hvernig mismunandi efni bregðast síðan við honum,“ segir hann.
Zimoun vinnur gjarnan með einfaldan efnivið úr daglegu lífi og iðnaðarumhverfi og þá gegna hljóðeiginleikar efnanna lykilhlutverki. Fyrir þessa sýningu vildi hann notast við efni sem tengist Akureyri og sækir þannig innblástur í nærumhverfið og hafnarmenningu svæðisins.
„Þetta leiddi mig að baujunum sem ég nota í innsetningunni. Framleiðandinn lánaði þær góðfúslega yfir sýningartímabilið,“ útskýrir Zimoun.
Hann segir markmiðið ekki endilega vera að stýra upplifun gesta í sýningarrýminu heldur að skapa aðstæður þar sem fólk fær tækifæri til að skynja merkingu sýningarinnar á persónulegum nótum.
„Ég vona að þessi innsetningin veki upp hugrenningatengsl og virki sem hvatning fyrir gesti til að skoða, uppgötva eitthvað nýtt og mynda eigin tengingar.“
Rýmið í Listasafninu á Akureyri hafði einnig mikil áhrif á þróun verksins. Zimoun segir innsetningar sínar alltaf skapaðar sérstaklega fyrir þau rými sem þær eru sýndar í og að hann líti á rýmið sjálft sem mikilvægan hluta af verkinu. „Hlutföll rýmisins í listasafninu og efniskennd þess gegna mikilvægu hlutverki í þróun verksins,“ segir Zimoun. Að hans sögn hefur þannig hljóðið áhrif á hvernig gestir upplifa rýmið, þar sem titringur, endurómur og hreyfing umbreyta salnum í lifandi hljóðlandslag sem breytist eftir staðsetningu og hreyfingu gesta um rýmið.









