Garðar Atli Gestsson og Tobías Þórarinn Matharel, frjálsíþróttakappar frá UFA voru valdir á smáþjóða-meistaramót fullorðna í Mónakó sem fer fram 30. maí nk. Garðar mun keppa í spjótkasti og og Tobías í langstökki og boðhlaupi.
Tobías varð meðal Íslandsmeistari í langstökki á Meistaramóti Íslands árið 2025 þar sem hann stökk yfir 7 metra og náði EM-lágmarki aðeins 16 ára gamall og Garðar Atli varð Íslandsmeistari árið 2024 í flokki 15 ára drengja í spjótkasti.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










