Sumarið hófst með krafti hjá Menningarfélag Akureyrar þegar Patti Smith steig á svið fyrir fullu húsi þriðjudagskvöldið 2. júní og framundan eru fjölbreyttir menningarviðburðir í Hofi.
Diddú og Örn Árnason bjóða upp á sjómannadagslög, söngva og sprell laugardaginn 6. júní klukkan 17.00.
Þverfaglega samtímadansverkið Malinche eftir danshöfundinn Yuliana Palacios verður sett á svið föstudaginn 12. júní klukkan 20.00. Þar mætast íslensk ull, margbrotin ljósasýning, dulúðleg hljóðmynd og þrír dansarar. Dansararnir eru Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ólöf Ósk Þorgeirsdóttir og meðhöfundar hreyfinga eru Emil Gunnarsson og Gabriel Marling Rideout. Jón Haukur sá um tónlistina og Ásta Guðmundsdóttir um innsetningu og búningahönnun.
Í fótspor þeirra eru tónleikar og sögukvöld sem verða haldnir í Hofi á Kvenréttindadeginum 19. júní klukkan 20.00. Viðburðurinn er jafnframt hluti af dagskrá Hinsegin daga á Norðurlandi. Efnisskráin spannar jazz, blues, folk og popptónlist og leiðir áhorfendur í gegnum ólík tímabil og ólíka baráttu fyrir sýnileika, frelsi og réttlæti.
Hér má finna miða á viðburðina.










