Í vikunni voru smáhýsi við Baldursnes 9 sett niður á lóðina og næstu daga verður unnið að frágangi húsanna og lóðarinnar. Húsin eru ætluð einstaklingum sem búa við heimilisleysi og fjölþáttan vanda sem getur haft áhrif á heilsu og lífsaðstæður. Félagslegur stuðningur verður veittur íbúum samhliða þörfum hvers og eins. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar í dag.
Í útboðslýsingu verkefnisins var óskað eftir tilboðum í átta færanleg einbýlishús, hvert um 35 fermetrar að stærð, auk eins 15 fermetra neyðarúrræðis. Verkið var boðið út í alútboði þar sem hönnun, efni, smíði og niðursetning húsanna er innifalin. Verksamningur við Verklausn ehf. var undirritaður 12. september 2025.
„Húsin eru hönnuð með áherslu á aðlaðandi útlit og góða nýtingu rýmis. Samspil timburklæðningar, forms og innra skipulags skapar hlýlegt og vandað yfirbragð. Við hvert hús er yfirbyggt útisvæði með skjólveggjum beggja vegna. Innra skipulag 35 fermetra húsanna er einfalt og vel útfært. Gengið er inn í litla forstofu á miðri langhlið hússins. Þaðan er aðgengi að baðherbergi, en sitt hvoru megin við forstofuna eru alrými með stofu og eldhúsi annars vegar og svefnherbergi hins vegar. Neyðarhúsið, sem er 15 fermetrar að stærð, er einnig vel skipulagt með forstofu, baðherbergi og svefnaðstöðu,“ segir í tillkynningu bæjarins.
Gert er ráð fyrir að íbúar flytji inn í júní og smíði næstu húsa er þegar hafin. Þau verða sett niður við Grænhól vestan Síðubrautar.










