Börnin í Búrkína Fasó í Keflavíkur-og Njarðvíkurbúningum

Akureyringar hvattir til að leggja ABC skólanum í Búrkína Fasó lið

Nú stendur yfir hjálparátak þar sem markmiðið er að fylla gám af nothæfum búnaði fyrir skólabörn í Búrkína Fasó í Afríku. Akureyringar eru hvattir til að leggja sitt af mörkum og gefa hluti sem geta nýst börnunum við nám og íþróttaiðkun.

Um það bil 1400 nemendur stunda nám við skólann í Búrkína Fasó, sem hefur byggst upp á síðustu árum með aðstoð velunnara víða að, meðal annars frá Íslandi. 

Akureyrísku hjónin Haraldur Pálsson og Jóhanna Sólrún Norðfjörð veita skólanum forstöðu og hafa um árabil unnið að fjölbreyttum verkefnum á svæðinu, meðal annars við að bora eftir vatni fyrir ræktunarland, stækkun skólahúsnæðis til að tryggja fleiri börnum aðgang að menntun og uppbyggingu tölvustofa með stuðningi frá skólum á Íslandi. 

Undanfarið hefur íþróttastarf við skólann eflst verulega, en skortur á búnaði og aðstöðu er enn mikill. 

„Þetta er ákall til allra starfandi einstaklinga í íþróttafélögum landsins (launaðir eða sjálfboðaliðar) og allra foreldra íþróttabarna landsins að kíkja inn í kompurnar sem við vitum að eru hjá öllum íþróttafélögum og öllum heimilum og athuga hvort þar liggi eitthvað sem er vel nothæft en verður aldrei notað,“ segja skipuleggjendur verkefnisins.  

Einnig er óskað eftir borðum og stólum fyrir ABC skólann í Búrkína Fasó, sem og upplýsingum um tengiliði eða fyrirtæki sem gætu haft áhuga á að leggja verkefninu lið.

Aðstandendur verkefnisins leggja áherslu á að jafnvel einfalt skólaborð eða stóll geti haft mikil áhrif á námsaðstæður barnanna og skapað betri tækifæri til menntunar. Þau hvetja fólk jafnframt til að deila upplýsingunum áfram til þess að verkefnið nái til sem flestra áður en gámurinn verður sendur frá Akureyri.

„Engin gjöf er of lítil – saman getum við haft mikil áhrif.“ 

Þau sem vilja leggja sitt af mörkum geta haft samband við Öldu Maríu Norðfjörð í síma 846-7313 eða sent tölvupóst á aldamaria@aveitan.is.

Úr skólastofu í Búrkína Fasó

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!