Mynd: Akureyri.is

Kosið í ráð og nefndir bæjarins

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar fór fram í Ráðhúsinu í gær. Á fundinum var staðfestur ráðningarsamningur við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem bæjarstjóra Akureyrarbæjar, Gunnar Már Gunnarsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar og Óðinn Svan Óðinsson verður formaður bæjarráðs. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Aðalfulltrúar í bæjarráði eru Óðinn Svan Óðinsson, formaður, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, varaformaður, Heimir Örn Árnason, Hlynur Jóhannsson og Sindri S. Kristjánsson.

Einnig var kosið í ráð og nefndir bæjarins. Formenn þeirra eru Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir í fræðslu- og lýðheilsuráði, Sunna Hlín Jóhannesdóttir í skipulagsráði, Heimir Örn Árnason í umhverfis- og mannvirkjaráði og Guðbjörg Anna Björnsdóttir í velferðarráði.

Með þessum ákvörðunum hefur ný bæjarstjórn formlega hafið störf á nýju kjörtímabili.

Ítarlegri upplýsingar og nákvæma skipan í ráð og nefndir bæjarins má nálgast í fundargerð fundarins.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!