Greiddu atkvæði gegn ráðningarsamningi við nýjan bæjarstjóra

Ný bæjarstjórn samþykkti í gær ráðningarsamning Berglindar Óskar Guðmundsdóttur sem bæjarstjóra Akureyrarbæjar á fyrsta fundi sínum. Fulltrúar minnihluta í bæjarstjórn greiddu atkvæði gegn samningnum og bókuðu eftirfarandi:

„Með því að auglýsa ekki stöðu bæjarstjórans á Akureyri lausa til umsóknar er komið í veg fyrir að faglegt hæfnismat fari fram og útilokað að tryggt sé að hæfasta manneskjan sem völ er á veljist til starfsins. Þá skýtur það skökku við að bjóða einstaklingi með takmarkaða reynslu af sama sviði upp á samskonar launakjör og fyrrum bæjarstjóri hafði, manneskju með umtalsvert meiri starfsreynslu. Launakjör sem munu kosta bæjarsjóð um 40 milljónir króna á ársgrundvelli, upphæð sem jafngildir bróðurpartinum af árlegum kostnaði við brýn verkefni á borð við farteymi inn í grunnskóla Akureyrar. Þar sem meirihlutinn hefur hvorki sýnt fram á málefnaleg rök fyrir því að ráða ekki fyrrum bæjarstjóra til áframhaldandi starfa né því að fara á svig við faglegt ráðningarferli bæjarstjóra, staðfestum við ekki þennan samning.“

Berglind Ósk segir að ákvörðun nýs meirihluta að gera breytingu á því fyrirkomulagi sem verið hefur við ráðningu bæjarstjóra og fela kjörnum fulltrúa að leiða sveitarfélagið byggi á sýn meirihlutans að efla hagsmunagæslu sveitarfélagsins og nýta bæjarstjórastólinn með markvissari hætti til að tala fyrir hagsmunum bæjarbúa, bæði innan og utan sveitarfélagsins.

„Meirihlutinn stendur saman um þá áherslu og telur hana mikilvægt skref til að styrkja stöðu sveitarfélagsins til framtíðar. Ég geri mér grein fyrir að nýtt fyrirkomulag og nálgun á embætti bæjarstjóra vekur eðlilega umræður eftir 16 ár af öðru ferli. Ég tel að sveitarfélagið búi yfir miklum styrk í þeirri reynslu, þekkingu og fagmennsku sem starfsfólk þess býr yfir og hlakka til að vinna náið með starfsfólkinu að þeim verkefnum sem fram undan eru. Á undanförnum árum hef ég gegnt ábyrgðarstörfum í þágu samfélagsins, tekið þátt í flóknum og fjölbreyttum verkefnum og unnið með fólki að því að ná árangri. Nú fæ ég það traust að leiða sveitarfélagið og hyggst nálgast það verkefni af auðmýkt, festu og mikilli vinnusemi. Samningurinn felur í sér um 13,5% lægri laun en forveri minn naut. Það er fyrsta skrefið í þeirri ábyrgð sem nýr meirihluti hyggst sýna í rekstri sveitarfélagsins. Við ætlum að fara vel með fjármuni bæjarbúa og gera þá kröfu fyrst til okkar sjálfra,“ skrifar Berglind á samfélagsmiðlum sínum.

„Ég geri mér fulla grein fyrir því að traust fæst ekki með orðum einum saman. Það byggist á verkum, ákvörðunum og árangri yfir tíma. Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni með starfsfólki sveitarfélagsins, kjörnum fulltrúum og bæjarbúum öllum. Ég verð ekki bæjarstjóri þeirra sem kusu mig eða þeirra sem styðja meirihlutann. Ég verð bæjarstjóri allra bæjarbúa og mun vinna af heilindum fyrir samfélagið í heild.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!