Tónlist Hauks notuð í auglýsingaherferð fyrir stórmynd Steven Spielberg

Lagið Divine Intervention eftir Eyfirðinginn Hauk Sindra Karlsson kemur fyrir í stiklu fyrir næstu stórmynd leikstjórans Steven Spielberg, Disclosure Day. Haukur er sjálfstætt starfandi tónskáld og tónlistarframleiðandi með sitt eigið fyrirtæki og stúdíó í Kaupmannahöfn. Hann útskrifaðist úr mastersnámi í tónsmíðum frá Royal College of Music í London árið 2023.

Síðastliðið rúmt ár hefur hann unnið náið með bandarísku fyrirtækjunum Rareform Audio og Black Sheep Music þar sem hann skapar tónlist fyrir markaðsfyrirtæki og kvikmyndastúdíó.

„Verkin sem ég smíða fara svo inn í svokallað “music library”, sem þessi fyrirtæki halda úti og framleiðendur hafa aðgang að. Félagar okkar hjá Buddha Jones, sem klipptu trailerinn fyrir Disclosure Day, völdu lagið mitt “Divine Intervention” fyrir fyrri hluta trailersins og Universal hefur litist vel á það. Það sem gerir þetta sérstaklega skemmtilegt er að lagið var í raun samið með þessa mynd í huga. Nathan sá fyrsta teaserinn fyrir Disclosure Day fyrir nokkrum mánuðum og sagði við mig: „Við þurfum að gera albúm í þessum stíl og senda það út í networkið okkar. Lögin þurfa að vera nógu góð til að geta endað í Disclosure Day trailer.“ Ég samdi þá meðal annars lagið “Divine Intervention” út frá þeirri hugmynd. Svo liðu vikur og mánuðir og ég hélt einfaldlega áfram að vinna að næstu verkefnum. Svo opnaði ég YouTube í gær, sá nýja trailerinn – og þar var lagið mitt komið í notkun í rúma mínútu í trailerinum til að leggja stemninguna, áður en svo tekur við annað verk til að skipta um gír,“ segir Haukur í samtali við Kaffið.is.

Haukur segir að það sé gríðarlegaur heiður að tónlist hans komi fyrir í herferð fyrir Steven Spielberg mynd. „Þetta er einmitt verkefni sem mig hefur dreymt um frá því þegar ég byrjaði að semja tónlist sem táningur í herberginu mínu í Eyjafjarðarsveit. Eftir að hafa einnig átt tónlist í trailer-herferð fyrir nýju Jason Statham myndina Mutiny fyrr á árinu er þetta enn eitt stórt skref fram á við. Ég ætla klárlega að reyna að byggja áfram á þessu eins og ég mögulega get.“

Stikluna fyrir kvikmyndina Disclosure Day má sjá í spilaranum hér að neðan:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!