Ívar Klausen heldur tónleika á Græna hattinum

Ívar Klausen heldur tónleika á Græna hattinum á Akureyri þann 5. júní kl. 21:00 ásamt hljómsveit. Ívar hefur verið áberandi í íslensku tónlistarsenunni undanfarin ár sem session-gítarleikari og fjölhæfur tónlistarmaður. Hann hefur komið fram með fjölda listamanna og hljómsveita, þar á meðal Múr, Kára Egils, Bear the Ant og Elínu Hall, auk margra annarra.

Nýverið gaf Ívar út sína fyrstu samnefndu plötu sem hefur fengið afar góðar viðtökur, meðal annars hjá Rás 2. Lagið „Dreamer“ fór beint á A-lista stöðvarinnar og hefur vakið verðskuldaða athygli.

Á tónleikunum kemur Ívar fram með stórskipaðri hljómsveit skipaðri saxófónleikara, tveimur gítarleikurum, bassaleikara og trommara. Tónlistinni má lýsa sem blöndu af bítlapoppi og mjúku snekkjurokki með áhrifum úr klassísku poppi og rokki.

Hljómsveitina skipa:

  • Ívar Klausen – gítar og söngur
  • Alexander Grybos – gítar
  • Pálmi Stefánsson – trommur
  • Hjálmar Carl – bassi
  • Robert Aron – saxófónn

Tónleikarnir fara fram á Græna hattinum þann 5. júní kl. 21:00.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!