Mynd: VMA

Góð aðsókn í MA og VMA á komandi skólaári

Innritun nýnema í framhaldsskóla er lokið og var aðsókn mjög góð í bæði Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólanum.

Menntaskólinn á Akureyri

Alls sóttu 249 nýnemar um skólann sem fyrsta kost og voru 226 teknir inn en heildarnemendafjöldi verður þó svipaður og á síðasta skólaári. Innritað var í fjóra bekki á náttúrufræðibrautum, fjóra á félagsgreinabraut og einn hóp á íslenskubrú. Ekki var hægt að hefja kennslu á kjörnámsbraut í sviðslistum eða mála- og menningarbraut vegna of fárra umsókna og kröfu um aðhald í rekstri, skv. upplýsingum á vef MA. Umsækjendur þar voru því innritaðir á varabrautir. Bekkir skólans eru fullsetnir sem þýðir að ekki komust allir inn á sínar óskabrautir, jafnvel þótt inntökuskilyrði hafi verið uppfyllt. Hægt er að óska eftir því að fara á biðlista.

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Aðsókn vareinnig mjög góð í VMA. Alls innrituðust 270 nýnemar í skólann á komandi önn og til viðbótar hafa 94 eldri nemendur þegar innritast fyrir næsta skólaár. Skólinn fagnar komu nýrra nemenda í ágúst og bendir á heimasíðu sína fyrir frekari upplýsingar um skólabyrjun.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!