Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Hörgársveit

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Hörgársveit liggja nú fyrir og lokatölur komnar í hús. Á kjörskrá voru 715 og kjörsókn 71,6%.

G-listi Grósku var þar efstur á blaði, en missir þó svolítið fylgi frá síðustu kosningum. Listinn hlaut 47,8% atkvæða og tvo kjörna fulltrúa.

D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra er nýtt framboð í sveitarfélaginu og kom sterkt inn með 34,5% atkvæða og tvo kjörna fulltrúa.

H-listi Hörgársveitar missti fylgi frá síðustu kosningum líkt og G-listinn. Hann fær 17,7% atkvæða og einn kjörinn fulltrúa.

Kjörnir fulltrúar

Sunna María Jónasdóttir (G)

Árni Rúnar Örvarsson (D)

Róbert Fanndal Jósavinsson (G)

Bjarki Brynjólfsson (H)

Katrín Olsen Björnsdóttir (D)

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!