Fimm voru handteknir í nótt, þar af fjórir fyrir líkamsárásir á Akureyri. Alls voru þrjár líkamsárásir í nótt en þeir fimm sem vistaðir voru í fangaklefa í nótt hefur verið sleppt úr haldi.
„Áframhaldandi rannsóknir kröfðust þess ekki að þeir dveldu hér lengur,“ segir Heimir Heiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?








